Windows 7

Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows 7, kom á markað þann 22.október 2009. Fyrsta sendingin seldist upp áður en varan kom til landsins og er von á nýrri sendingu í verslanir þann 30. október. Windows 7 er hannað með tilliti til ábendinga frá notendum sem vildu stýrikerfi sem er einfalt í notkun, hraðvirkt og áreiðanlegt. Hönnuðir Microsoft gerðu hundruð breytinga til að bregðast við þessum óskum og bættu einnig við öðrum nýjungum frá eigin brjósti. Við mælum með því að þú prófir Windows 7 og finnir muninn.

Óhætt er að segja að Windows 7 hafi vakið athygli og umtal um gjörvalla tækniheima. Microsoft gaf öllum tækifæri til að taka þátt í þróun Windows 7 og safnaði upplýsingum og athugasemdum frá milljónum einstaklinga. Hönnuðir Microsoft nýttu þessar upplýsingar við framleiðslu á nýja stýrikerfinu. Kynntu þér kosti Windows 7 og taktu þátt í umræðunni á blogginu, Facebook og Twitter.

 



Virkar Windows 7 á tölvunni?

Geturðu ekki beðið?

Uppfærsluráðgjafinn hjálpar þér að komast að því >>

 Teldu niður að útgáfu Windows 7 á skjáborðinu þínu>>

Windows 7 á Facebook

Windows 7 á Twitter

Windows 7 á Blog.is

Fylgstu með niðurtalningunni að Windows 7
útgáfunni á facebook

Fylgstu með niðurtalningunni að Windows 7
útgáfunni á Twitter

Fylgstu með niðurtalningunni að Windows 7
útgáfunni á Blog.is

Opin kerfi eru Innkaupa- og dreifingaraðili Microsoft á Íslandi